Survey 4 Life
09.04.2007 15:22:23 / survey

Merkilegur dagur


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 14:36:44 / survey

drykkfeld tölva og annað

Kæru mælingamenn nær og fjær. Það hefur eitt og annað gengið á hér hjá mælingaflokk HRV.

Bosko grét krókódílatárum alla síðustu viku og var að leita sér að fari í höfuðborgina til að mótmæla fyrir utan hótel Sögu þar sem klámráðstefnu gestum var meinaður aðgangur. Hyggst Bosko snúa sér alfarið að öðrum hótelum í bænum, enda hefur Saga hætt sýningum á klámrásum.

Um þar síðustu helgi fór fram spurningakeppni á Eskifirði þar sem starfsmenn HRV voru að sjálfsögðu með lið og með sterka menn innanborðs. Meðal annars voru þar Jónas víðlesni og Davíð Geirsson fyrrum gettu betur meðlimur. Riðu menn ekki feitum hesti frá því og var 4. sæti niðurstaðan. Spurningarnar voru víst aðlagaðar fyrir kanann svo hann kæmi ekki illa út úr þessum leik.

Seinna sama kvöld og eftir nokkra bjóra gengu menn til hvílu. Jónas hefur það fyrir sið að fara með einn öl upp í rúm svo hann sofni betur. Ekki vildi betur til en að hann sofnar með bjórinn á vömbinni og eftir nokkra klukkustunda svefn vaknar hann og ákveður nú að leggja bjórinn frá sér svo hann eigi hann inni um morguninn. Fartölvan var fyrir valinu sem hýsill á bjórinn en það vill nú ekki betur til en að úr bjórnum hvolfist ofan í blessaða tölvuna. Jónas finnst það nú ekki tiltökumál, enda viss um að bjórinn muni gera henni gott, hleður hana bara í versta falli og snýr Jónas sér því bara á hina hliðina og sefur værum blundi fram á sunnudagsmorgun. Tölvan fór því miður úr Hibernate í svefninn langa.

 Sprettur og Pretty boy hafa verið við skíðaiðkun í Oddskarðinu síðustu daga eins og myndirnar í myndaalbúminu sína glögglega. Eitthvað voru Blizzard skíðin að stríða Sprettinum og náði hann þessu skemmtilega hliðar skriði. Pretty boy er hins vegar mun vanari og á glænýjum telemark skíðum frá Sviss.

Lead Surveyor hætti sér út fyrir austurland um helgina og fór með hundinn og fjölskylduna í borg óttans þar sem fram fór hundasýning. Tókst það vel að sögn Steina og fékk Canis fyrstu verðlaun í sínum flokki. (tekið skal fram að hann var einn í sínum flokk). Steini hætti hins vegar lífi fjölskyldunnar til að komast á hundasýninguna því snarvitlaust veður var á leiðinni og snjóflóðahætta í Hvalnes skriðunum. En eins og allir vita þá er Steini á annáluðum fjallabíl og óð í gegnum skaflana við litla hrifningu Merete.

Starfsmannamálin eru að komast á hreint hér. Pretty boy hefur framlengt dvöl sína hér og verður út maí. Berglind og Ísbjörn ætla koma aftur í sumar og er það merki um ágæti survey team. Mælingamenn landsins bíða hreinlega í röðum til að komast hér að. Hér eru miklar væringar í starfsmannamálum þannig að fylgist með...


» 13 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 12:14:02 / survey

stóri bróðir

Já nú snjóar hann hér á site, reyndar bara hörku vetur. Höfum séð þetta áður hér í síðustu viku, þá var einmitt svona hraglandi í 2-3 daga, en brast svo á með úrhellis rigningum og veseni þannig að allt fór á flot. Sáu menn þá nokkra hönnunargalla í verkinu þar sem regnvatnið rann ekkert í stríðum straumum ofan í þar til gerðar pípur sem leiða vatnið til sjávar (settjörnina). Meira að segja kom kvörtun frá shit treatment plant (STP) um að óvenju hreint vatn bærist frá site. Svo er stóri sívalingurinn hér (síló) farið að taka við hlutverki settjarnar en inn í það streymir vatn. Pólskur flokkur múrara liggur nú utan á því og þykist vera að sparksla í götin. Á sama tíma skríður fyrsta súrálsskipið í átt að landinu og er sennilega statt í Súes skurðinum núna eða inn á Miðjarðarhafi.

Annars allir sæmilega hressir. Flensan hefur verið að grósera hér á klakanum en eins og Bosko segir þá erum víkingar hér í survey og látum ekki smá kvefskít buga okkur.

Nú eru mælingamenn farnir að horfa í kringum sig með aðra vinnu í huga og er staðfest að 3 og mjög sennilega 4 mælingamenn hætti hér í apríl. Jónas hefur sagt upp og leitar undir verndarvæng sjálfstæðismanna á Akureyri í sumar. Bylgja hverfur einnig á braut og hefur fengið vinnu hjá Snertli. Steinþór (pretty boy) mun að öllum líkindum flytja sig um set og fara í höfuðborgina og vinna fyrir VGK-Hönnun. Þjóðverja skrattinn er á leið til Noregs núna yfir helgina og ætlar í atvinnuviðtal þar. Það verður nú sennilega betra fyrir hann þar því r-ið verður ekki að þvælast fyrir honum í norskunni blessuðum. Bosko sýnir hins vegar ekki á sér neitt fararsnið og mælir sem aldrei fyrr. Verst að einveran á kvöldin er að fara með hann. Talar ekki um annað en að komast til Reykjavíkur þegar klámráðstefnan verður haldin í mars. Er hann búin að skrifa beinagrind af "léttri" senu þar sem hann mun vera æfa körfuboltaskotin þegar einmanna klappstýra kemur að honum. Ef vel tekst til mun hann taka upp nafnið the Serbian stalion.

Stóri bróðir (big brother) hefur teygt anga sína hingað til Íslands. Þar sem þetta er skrifað á miðvikudegi þá er von á norðanmönnum austur. Var Mælstóne í sakleysi sínu að vitja um færð og veður á leið þeirra. Lengst upp á öræfum er búið að koma upp vefmyndavél sem myndar þar út í loftið og viti menn, sér þar ekki í toyota corolla (árg.88 ) eintakið hans Jónasar. Því miður sést ekki á hvaða hraða þeir eru, en þeir eru sennilega á seinna hundraðinu á leið til vinnu. Ef myndin prentast vel má greina nýju álfelgurnar hans Jónasar

Meira seinna.

prófarkalesarinn.


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 11:46:39 / survey

Sólin byrjuð aftur hjá Fjarðaáli

Spretturinn kom laglega upp um sig áðan.:$:^)

Hringdi í Mælstóninn og hvað sig og Kanslarann vera í sólbaði sunnan við pottrúmmið í töluðum orðum.  Annað eins slux í mælingum hefur ekki heyrst síðan Aðalbólsbræður fóru upp á Sandvíkurheiði í sólbað á Bechtel bíl um miðjan dag, ekki fara nú sögur af því hvað þeir voru að gera þar en menn halda kanski að Óli hafi verið að röra bróður sinn inn í Survey.

En nóg um það, sólin var sem sagt að teygja sig yfir fjallstoppana yfir Eyrardalnum austan við Miðstrandartindinn eftir þriggja mánaða setuverkfall, en hún var víst eitthvað á móti Reyðfirðingum.  Eirarmaðurinn sem varð að steini við sólarupprás fyrir nokkrum árum þegar hann gleymdi sér yfir bókalestri utan við helli sinn í toppi Miðstrandartins situr nú upplýstur á sama stað.

Smá um HM

Þeir sem sáu Ísland tapa fyrir kartöflupungunum frá flatlandi eftir gríðarlega spennandi leik í undanúrslitum HM gleyma sennilega ekki litla stráknum sem sat bak við netið með íslenska fánann málaðann á kinnina á sér.  Þessi litli stráku sem lét ekki sitt eftir liggja í því að styðja strákan okkar var engin annar enn Hjössi okkar feiti mæló.  Maður horfði með stolti á stákana okkar leika glimrandi handbolta en enþá stoltari varð maður þegar maður sá útsendara mælingamanna í stúkunni.  En eftir leikinn var ekki svo mikið eftir af stoltinu, strákarnir töpuðu með einu helvítis marki og Hjössi litli stóð hágrátandi upp í stúku fyrir framan miljóna áhorfenda um allan heim.  En Alfreð sagði eftir leikinn að hann væri samt stoltur af strákunum og ætli við verðum ekki að vera stolt af honum Hjössa okkar líka, hann stóð sig eins og hetja og tók sig bara nokkuð vel út í sjónvarpinu.

Jæja Bosko er farinn að reka á eftir mér, það á að fara á Búðareyri og kaupa ís í tilefni sólaruprásarinnar.

Þið verðið að afsaka stafsettningavillur en prófarkarlesarinn er í Sviss á skíðum.

Kveðja

Mælstón


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 08:45:50 / survey

Veður, færð og Bosko

Þegar ég vaknaði í morgun kl.5:30 fylltist ég allur vonar. Það var nefninlega stórhríð á glugganum há mér, allt á kafi í snjó og von til þess að það væri ófært á dalnum. Fór nú samt á fætur kíkti á www.vegagerdin.is sem sýndi NNV 10 m/s, -3°, ?merki um færð og 1 bíl síðustu 10 mín. "Helvíti" snjómokstursbíllinn búinn að fara yfir. Það þýddi því ekkert annað enn að drífa sig í gallann, fara út með hundinn www.canis.dyraland.is og bíða eftir Bosko. Kallinn mætti og færði sig í farþega sætið, hafði lítið sofið um nóttina, kem að því síðar. Ekki bætti það svo á veðurútlitð á dalnum að LU 295 var hálf rafmagnslaus en hann hefur ekki hlaðið almennilega upp á síðkastið og þegar við förum með hann á verkstæðið þá setja þeir bara geymirinn í hleðslu. Hálvitar. Við fórum því af stað með smá týru á ljósunum, miðstöðina á 1 og slökkt á útvarpinu. En eins og menn kannski átta sig á þá komumst við yfir dallin sem var svo eftir allt marauður nema hvað að það var soldill snjór upp í gegnum skóginn frá Egilsstöðum. Aðra sögu er aftur á móti að segja af Einarsstaðabúum sem voru rétta að skríða í hús um kl. 8:00. Það bar til með þeim hætti að eftir mikið japl jaml og fuður, nokkra hringi í kringum leikvöllinn lendir bíllinn í halla og ískyggilega nálægt tré sem stendur þarna við veginn. Það var ekki um að villast, mælingamenn voru komnir útaf og eftir smá manúeringar var ástandið orðið litlu skárra. Tommi húsasmíðameistari og björgunarsveitamaður snéri við á leið sinni til vinnu og bjargaði mælingamönnum úr þessari lífshættulegu aðstæðum með púllarabandi einu saman. Allt fór þetta vel að lokum allir komust til vinnu heilir að húfi. Eftir er að athuga skemmdir á bílnum en hugsanlega hefur tréð náð að klóra hann aðeins á hliðinni.

Aftur að Bosko. Þegar kallinn kom til baka frá tannlækninum á Norðfirði var ekki sjón að sjá hann. Stóri hausinn á honum var orðinn ennþá stærri og átti hann erfitt með að tjá sig. Helvítis skottulæknarnir á Norðfirði létu sér nefninlega ekki nægja að gera við tennurnar í honum heldur tóku þeir sig til og rifu úr honum tvær. Þetta er svipað og með bifvélavirkjana hér á sæt, bara hlaða geymana þegar bíllinn hleður ekki. Það er þó eitt jákvætt við þetta, það þarf ekki að gera við þessar tennur. En Bosko greyið svaf eitthvað lítið í nótt vegna verkja og vakknaði svo í morgun með blóð á koddanum og gat ekki lokað munninum. Þetta er ástand, en hann er allur að skríða saman og gat borðað 1/2l af skyri í morgun en hann hafði ekkert borðað í allan gærdag.

Verið sæl að sinni Survey4life

Kveðja Mælstóne


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 17:08:24 / survey

hneyksi og veðurlýsing

Frábær dagur á enda runninn hér á sæt. Dagurinn byrjaði á því að Bosko og Pretty boy fóru og hæðarmældu nokkra ræsers. Þá var þeirra dagsverki lokið og hafa þeir síðan farið einu sinni niður á Búðareyri og tvisvar út á rúntinn. Sprettur kom kl 11 í morgun og hefur hann átt annasaman dag á netinu. Jónas, Finnur og Bylgja hafa verið eftir hádegi á kafi í að finna nokkrar niðurfalls ristar og á endanum fundu þau brauðrist og þá var Bylgja rist á hol. Steini hefur verið önnum kafinn í skipulagsmálum fyrir hesthúsið sitt ásamt því að sinna nokkrum excavation permits.

Veðrið er annars nok fallegt, 1004 mb,  -6°C og stinnings kaldi sem hentar mjög vel til tófu veiða.

Hneykslis mál kom hér upp fyrir nokkrum dögum og voru menn skammaðir hér í dag. Þegjandi samkomulag hefur verið milli Pretty boy og Mælstone um að sá fyrrnefndi fái að hafa afnot af göllum þess síðarnefnda. Í síðustu viku kom Sprettur hinsvegar inn og sagðist hafa fengið gamla appelsínugula gallann  hans Steina (sem hann fékk þegar hann byrjaði í mælingum sumarið 2004) að láni í nokkra daga en var búin að skila honum aftur þar sem hann var búinn að fá nýjan galla. Var það auðsótt mál þar sem Pretty boy er að verða víkingur við það eitt að vinna með Bosko. Hins vegar þegar Steini ætlar út í gallanum sínum á laugardaginn (gott veður þá) sér hann að það er búið að merkja gallann hans stórum stöfum SPRETTUR... Ótrúlegt maður

Bryndís og Bylgja hafa sótt um að fá sérhannaðar úlpur þar sem þær hafa eyðilagt nokkrar undanfarið. Vilja þær kenna um slakri hönnun og ekki gerðar fyrir mjaðmamikla líkama. Hinn skeleggi Davíð Davíðsson hefur verið settur í málið og er viðbragða að vænta á næstu dögum... við fylgjumst með.


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 12:44:43 / survey

Surveyafmæli

Gaman að segja frá því að hún Bylgja okkar á eins árs mælingaafmæli í dag, en hún mætti á þessum dýrðar degi 9. janúar 2006 á hér á sæt. Sögur herma að mælingamaður nokkur frá Húsvík hafi hafi sagt við annann mælingamann "hún á nú ekki eftir að endast nema mánuð þessi". En það hefur sýnt sig að hann hafði ekki rétt fyrir sér enda þekktur fyrir allt annað enn bjartsýni og yfirgaf svæðið sjálfur eftir stutta viðveru. Blessuð sé minning hans. En Bylgja mælir og mælir enn þann dag í dag og sér nær allfarið um 500 bygginguna eftir fráhvarf Boga og Örvars og virðist engin bugur á henni. Til Hamingju Bylgja mín Survey4life Ritstjóri Prófarkarlesari

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 13:10:20 / survey

Nú er mér nóg boðið

Þar sem ég er yfirlýstur kókisti og þarf minn 1/2 líter til að koma mér í gang á morgnanna komst ég ekki í gang fyrr enn í hádeginu. Ástæðan er sú að það er ræningi á meðal vor hér á POD 2. Ég hef það fyrir vana minn að eiga alltaf eina flösku í ísskápnum, en í morgun brá mér illilega í brún... Í skápnum var galtóm flaska á nákvæmlega sama stað og mín er alltaf og á henni var post-it miði með áletruninni... "I took someone's coke yesterday and drank it. I will return it monday morning, thanks John Crane." Flaskan hefur ekki enn skilað sér þegar þetta er skrifað í hádeginu...:evil:

Helvítis feita rassgat... svo eru menn að furða sig á að það gengur ekkert hérna... "Yfirmenn" önnum kafnir að vera hnupla meðölum samstarfsmanna sinna.

Þetta kostaði eina ferð niður á Búðareyri í verlsunarferð...

Steinþór Pretty boy


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 08:17:14 / survey

Fleyg settning

Bosko kom með eitt av sínum gullkornum nú rétt áðan.  Hann var að skoða einhverja grein á Serbneskri fréttasíðu um einhverja fræga tjellingu og var þar mynd af henni.  Steinþór spyr hvaða svaka gella þetta sé og fær hann útskýringar á því og bætir Bosko við að hún sé með sílikon all ower the body.  Og þá kemur að gullkorninu: "She is like a robot, it is better to fuck terminator than her" 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 10:02:49 / survey

Annáll

Árið 2007 er gengið í garð og vil ég nota tækifærið til að óska ykkur til hamingju með 7 ára afmæli þúsundársskiptanna og um leið þakka fyrir liðið ár.

Það verður ekki létt hlutverk að taka upp hanskann fyrir firrum upplýsingafulltrúa og ljóðskáld Survey (Grétsky og lífsthórnum), en við munum gera okkar besta.

Það væri gaman ef fólk gæti komið með upplýsingar um sjálft sig á síðuna svo við getum séð hvað á daga ykkar hefur drifið og hvar þið eruð stödd í heiminum núna.  En hér kemur listi yfir þá sem ég veit um núna:

Andri og Mummi: Eru á þriðja ári í Verkfræði í HÍ, Andri er nú laus og liðugur og dauðlangar að koma aftur á sæt í sumar og klára þetta helvíti.  Mummi hinsvegar er búinn að fá nóg af Reyðarfirði og ætlar að hlúa að tjellingunni fyrir sunnan í sumar og fara svo down under til Ástralíu eftir áramót og taka Master.

Gunni Magg:  Er búinn með sumarbústaðinn, búinn að kaupa lóð undir hann og ætlar að koma honum fyrir þar á næstunni.  Hann ákvað svo að nýta reynslu sína úr fasteignabransanum sem hann öðlaðist á internetinu hér á sæt, en hann er farin að vinna sem fasteignasali hjá Remax.  Býr í leiguíbúð sem frændi hans á í bænum.

Grétský:  á eina eina önn eftir í að verða umferðaverkfræðingur út í Síattle.  En hann heldur úti bloggsíðu sjálfur svo þið getið fengið allar upplýsingar um hann þar. www.123.is/seattle

Hjössi feiti: fór að vinna hjá Línuhönnun 8) í borginni, en hann átti víst konu og börn sem hann tók fram yfir survey á sæt.  óótúlegt madur.  Býr í einhverstaðar út í sveit á suðurlandinu Mos.... eitthvað held ég það heiti.  En er nú búinn að kaupa sér lóð á einhverju herragarði sem heitir Leirvogstunga og ætlar að reisa draumahöllina þar.  Hjössi minn þú slærð bara á þráðinn ef þig vantar útsettningu. Hjössi er líka með blogg síðu hoa76. blogspot.com

Axel Ben:  Er í landinu flata að reyna að finna út hvað olli brunanum í Köben sem varð til þess að handritin hans Árna brunnu.

Ingvar pabbi:  er í HR að læra tæknifræði ásamt Bjössa bróðir og Njóla, hefur ekkert gaman af jólunum og fékk 10-8-8 í fyrstu prófunum sínum.  Til hamingju með það Ingvar. www.hrpungvar.blogdrive.com

Jæja þetta er nú orðið ágætt í bili, þessari upptalningu verður haldið áfram síðar þegar um hægist í mælingunum.

Kveðja frá Survey on sæt

Survey4life

Pistlahöfundur: Survey lead (Mælstone)

Profarkarlesari: Steinþór pretty boy


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 09:03:19 / survey

Báðir vefstjórarnir og frændurnir farnir....

Við frændur Gretsky og Tórinn höfum látið af störfum sem mælingamenn og því enginn tilgangur að halda úti þessari síðu - nema að einhver annar taki við kyndlinum og haldi hlaupinu áfram.

Hafið samband við mig (gretar80@hotmail.com) ef þið viljið fá username og passwordið.

Survey 4 Life


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 23:18:15 / survey

He´s my Idol

TIL HAMINGJU, TIL HAMINGJU

 kæru samstarfs félagar nú er komið að því

hinn geysimagnaða og skemmtilega David Hasselhoff vika rennur í garð á mánudaginn

eitthvað til að láta sér hlakka til :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 11:02:39 / survey

Fylkismaðurinn farinn

Þau stórtíðindi áttu sér stað fyrr í morgun, að Fylkismaðurinn kom á POD4, tók föggur sínar og kvaddi liðið. Við minnumst hans fyrst og fremst sem frábærs leiðtoga og föður okkar allra. Hve dátt hann hló og hans yndislega skaps verður sárt saknað.

Take care - out there, Mr. Anderson

"It's not a popularity contest"
M. Anderson 2005-2006

survey 4 life


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 14:28:56 / survey

Björn vikunar!!!!!

Hetja dagsins er án efa Hallbjörn þar sem hann skutlaði sér líkt og færasti markvörður til að grípa hæðakíkinn sem var að fjúka í roki kíkirinn lenti beint á andlitinu á honum en til allra lukku tókst honum að grípa utan um kíkinn áður en hann féll til jarðar....... góð fórn Björn  

frá og með 18 apríl 2006 mun núverandi Hallbjörn vera þekktur undir nafninuAlbjörn þar sem hann er að hætta í hallamælingum með besta vini sínum Eyþóri og er að hefja störf við Alstöðvar mælingar....  


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 09:47:48 / survey

úrslit úr skoðunnarkönnun

Starfsmaður mánaðarins

Steini

 12%
Tórinn
 53%
Sprettur
 18%
Bosko
 6%
Hallbjörn
 12%
tórinn sigrar með yfirburðum "með sínum eiginn atkvæðum" :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3